Stjörnuljósmyndir - Astrophotography

Að mynda djúpfyrirbæri er skemmtileg áskorun og ákaflega gefandi ef vel tekst til. Höfundur vefsvæðisins hefur ljósmyndað stjörnur og norðurljós frá því á síðasta áratug 20. aldar.  Hér eru kynntar ljósmyndir af geimþokum og stjörnuþyrpingum í Vetrarbrautinni auk fjarlægra stjörnuþoka.

Stjörnuáhugamenn hafa verið duglegir að auðkenna geimþokur í gegnum tíðina með samlíkingaheitum. Hér eru þær kynntar undir þeim auðkennum þegar við á.

Flestar myndirnar hafa verið teknar með WO FLT 110 APO lithreinum linsusjónauka, SBIG STL11k-M CCD myndflöguvél, ýmist í gegnum RGBL litsíur eða einlitar Hα, SII, OIII síur. Aðrar eru teknar með Meade ACF 400 mm linsu-/spegilsjónauka og sömu myndavél eða SW Evostar 80 mm APO lithreinum linsusjónauka og þá notuð Zwo Asi 174M-C myndavél og BVR ljóssíur. Þær eru staflaðar en lýsingartími misjafn og spannar frá 60-1800 sek.

Capturing deep sky objects is both an amusing challenge and very rewarding when it turns successful. The author of this website has imaged stars and the northern lights since the last decade of the 20th century. This page presents images of emission nebulae, Milky Way’s star clusters as well as distant galaxies.

Most of these images were captured with WO FLT 110 APO apochromatic refractor and SBIG STL11k-M CCD camera, using photographic RGBL broadband or Hα, SII, and OIII narrowband filters. Some images have been captured with Meade ACF 400 mm telescope, using the same camera, or SW Evostar 80 mm APO apochromatic refractor and Zwo Asi 174M-C camera, with photometric BVR filters. The compositions are processed and stacked and sub-exposure time ranges from 60-1800 seconds.