Fjarreikistjarnan HAT-P-1 b er á braut um B-stjörnuna í tvístirninu SAO 72884 (BD+37 4734B; HAT-P-1 B) í Eðlunni. Hún uppgötvaðist í mæligögnum HATNet sem aflað var á árunum 2003-2004 og síðar staðfest með sjónlínumælingum. Helstu stikar sem eru kynntir á vefsíðu Exoplanet.eu (sótt í frumheimildir) eru: fjarlægð er talin 139 ±20 parsek (~453 ljósár), móðurstjarnan er 1,151 sólarmassar, reikistjarnan 0,525 Júpítermassi og umferðartími 4,46529976 dagar.

HAT-P-1 b orbits the B star in the binary SAO 72884 (BD+37 4734B; HAT-P-1 B)in Lacerta.  This planet was discovered in a project identified as The Hungarian Automated Telescope Network (HATNet), established in 1999 at the Kitt Peak Observatory in Arizona USA. It is estimated at a distance of ~453 light-years and the visual magnitude is 10.4. The host is a 1.151 solar mass star with a radius of 1.174 solar radii.  Its surface temperature is 5980 K°.  HAT-P-1 Bb is a ‘Hot Jupiter’ of 0.525 Jupitermass and a radius of 1.319 compared to Jupiter. It orbits its host at 4.46529976  days (EPE 2021).

Staðsetningarkort fyrir HAT-P-1 b (Stellarium) – Location map of HAT-P-1 Bb (Stellarium).

Höfundur fylgdist með þvergöngu HAT-P-1 b við ágæt skilyrði þann 2. nóvember 2021. Mynd 2a sýnir atburðarásina (punktar) borna saman við líkan (lína) spáðrar þvergöngu. Mynd 2b sýnir skinhlutfall, þ. e. hve mikið fjarreikistjarnan skyggir á móðurstjörnuna í þvergöngu, samkvæmt mælingunni. Myndin var fengin á vefsvæði VarAstro og aðlöguð að þessari síðu.

Mynd/Fig. 2a. Þverganga 2. nóvember 2021.- Based on VarAstro database.

Mynd/Fig. 2b. Skinhlutfall.- Geometry. Based on VarAstro database.

Þetta er á meðal daufustu þvergangna sem höfundur hefur fylgst með. Birtubreytingin er 0,006 bst. Aðstæður voru hinar ákjósanlegustu og myndatökur lánuðust vel. Niðurstöður sem fengust með reiknitóli TRESCA, varðandi ljósdeyfingu, lengd þvergöngu og O–C rit lágu nærri viðurkenndum gildum.

Ýtarlegri upplýsingar um mælinguna er í samantekt um stjörnuathuganir áranna 2020-2021.

An observation of the transiting HAT-P-1 b was made by the author of this website on November 2, 2021, from Nes Observatory. The observation was done under fair weather conditions. More details on this observation are in Icelandic, only.

HAT-P-1 b á vefsvæði TRESCA, Exoplanet Transit Database (ETD).

HAT-P-1 b at TRESCA website, Exoplanet Transit Database (ETD).

HAT-P-1 b á vefsvæði “The Extrasolar Planets Encyclopaedia” (EPE).

HAT-P-1 b at the Extrasolar Planets Encyclopaedia (EPE).

Sjónrænar þrívíðar upplýsingar um HAT-P-1 b á vefsvæði NASA, Exoplanet Exploration.

Visual 3D information about HAT-P-1 b at NASA website, Exoplanet Exploration.