Stjörnustöðvar eru staðir ætlaðir til athugana á stjörnum eða stjarnfræðilegum atburðum. Sem byggingar spanna þær frá garðskýlum, sem áhugamenn hafa byggt, til risavaxinna stjörnustöðva á háfjöllum, geimsjónauka og geimkanna.
An observatory is a place intended for the observation of stars or astronomical events. Observatories around the world are diverse facilities and range from amateur-built backyard sheds to gigantic mountaintop observatories, space telescopes, and planetary probes.
Í gegnum tíðina hefur höfundur vefseturins heimsótt stjörnustöðvar, mest fyrir forvitni sakir, og til þess að kynnast starfsemi þeirra örlítið. Stjörnustöðvar eru áhugaverðar og áhrifamiklar stofnanir; þær eiga forsögulegar rætur og hefur starfsemin í þeim gegnt því hlutverki að tengja saman menningararfleifð og vísindalega þekkingu. Með tímanum hafa stjarnfræðilegar áskoranir tekið breytingum og orðið flóknari, sem hefur kallað á aukna sérhæfingu. Sú þróun hefur að einhverju leyti fjarlægt starfsemi stjörnustöðva frá almenningi. Frásagnir höfundar á nokkrum stjörnustöðvum eru hér.
Over the years, the author of this website has visited observatories, primarily out of curiosity and a desire to gain some insight into their operations. Observatories are interesting and influential institutions; the origin is prehistoric and the activities conducted there have played a significant role in linking cultural heritage with scientific knowledge. Over the years, astronomical challenges have evolved and become increasingly complex, requiring greater specialization. This development has, to some extent, distanced the activities of observatories from the general public. The author’s accounts of visits to several observatories can be found here.