GY Psc er snertitvístirni sem er norðarlega í merkinu Fiskunum. Stjarnan var fyrst skráð árið 2008 en mæligögn um hana ná aftur til 1999. Birtulotan er 0,29028 dagur (6t58m01s). Dýpt millimyrkva er sama og aðalmyrkva. B.R.N.O. gagnagrunnurinn mat vægi 9/10 þegar mælingar fóru fram.
GY Psc is a contact binary located in the northern part of the Pisces. The period is 0.29028 day (6h8m1s). Secondary eclipse is of similar depth as the primary. The B.R.N.O. database rated the need for observations as 9/10 at the time of measurements.
Staðsetningarkort fyrir GY Psc (Stellarium) – Location map of GY Psc (Stellarium).
Höfundur ljósmældi GY Psc dagana 26. september og 7., 16., 20. og 26. október 2018. Niðurstöðurnar voru notaðar til þess til að meta viðmiðstíma og birtulotu myrkvastjörnunnar og draga upp birtustöðukort af umferðartíma hennar (mynd 2).
Ýtarlegri greinargerð um mælingarnar er að finna í samantekt um stjörnuathuganir frá Hornafirði árin 2018-2019.
GY Psc is a EW eclipsing binary, positioned at 01 19 15.8 +30 13 39. This star was observed on occasions over a period of one month from late September to October 2018. The intention was to examine its period and O-C graph, and cover the orbital period to establish a phase diagram (Fig. 2).
More details of this observation are covered in a report about author’s observations in 2018-2019. It is mostly Icelandic, with highlights in English.
Mynd/Fig. 2. Birtustöðurit PY Psc. Birtustaða (phase) á þverás og birtustig á lóðás. – A phase diagram of PY Psc. Phase on x-axis and flux on y-axis.