Þann 29. mars, 2006 fylgdist höfundur vefsetursins með almyrkva á sólu, frá Antalya í Tyrklandi. Áður en að myrkvinn átti sér stað sameinaðist ég vinum mínum frá New South Wales í Ástralíu, þeim Col og Marciu Maybury, ásamt hópi athugenda frá Sutherland Astronomical Society. Í þeim voru m.a Lou og Jo Pagano frá Sydney en auk þess Andy og Shirley McCrea frá Írlandi. 

On March 29, 2006, the author of this website observed a total solar eclipse from Antalya, Turkey. Before the eclipse occurred, I joined my friends Col and Marcia Maybury from New South Wales in Australia, and a group of observers from the Sutherland Astronomical Society. among them were Lou and Jo Pagano and Andy and Shirley McCrea from Ireland.

Sólmyrkvadagurinn reyndist einstakur og eftirminnilegur enda veðrið með einstaklega gott og myrkvinn átti sér stað á meðan sól var hátt á lofti. Við settum upp sjónauka okkar við rómversku rústirnar í Side, sem eitt sinn var þrælamarkaður en nú fjölsóttur ferðamannastaður. Þangað dró að fjölda sólmyrkvaaðdáenda, víðs vegar að úr heiminum. Við Antalyu stóð sólmyrkvinn yfir í 3 mínútur og 45 sekúndur. Myrkvinn ferðaðist frá Suður-Ameríku til Afríku, yfir Miðjarðarhafið og Tyrkland og síðan inn í Mið-Asíu. Hámarkslengd sólmyrkvans var 4 mínútur og 7 sekúndur og átti sér stað í suðurhluta eyðimerkur Líbíu. Ég læt hér undir stutt myndband fylgja með myrkvanum.

The day of the eclipse turned out to be unique and memorable, with exceptionally good weather and the sun high in the sky. We set up our telescopes at the Roman ruins of Side, once a slave market but now a popular tourist destination. It attracted a crowd of excited eclipse seekers from all over the world. The eclipse in Antalya lasted 3 minutes and 45 seconds. It traveled from South America to Africa, across the Mediterranean Sea and Turkey and then into Central Asia. The maximum duration of the eclipse was 4 minutes and 7 seconds and occurred in the southern part of the Libyan desert. I add below a short video of the eclipse.

Sólmyrkvinn 29. mars 2006. —  The total solar eclipse on March 29, 2006.

Sólmyrkvadagurinn 29. mars 2006, í Side, Antalyu í Tyrklandi. —  The eclipse day on March 29, 2006, in Side, Antalya, Turkey.

Myndröð sem sýnir sólmyrkvann 29. mars 2006. —  Series of images showing the total solar eclipse on March 29, 2006, from Antalya, Turkey.

Sólmyrkvinn 29. mars 2006, séður frá Antalya í Tyrklandi. —  The total solar eclipse on March 29, 2006, from Antalya, Turkey.